Kæru Mussur nær og
fjær.
Í óstöðvandi lærdómslestri dettur
manni ýmislegt í hug. Það þarf því ekki að koma ykkur á óvart að
þegar ég var í miðjum klíðum að lesa um lögmæltar séreignir hjóna
þá bamm...datt mér það í hug. Hvernig væri að mussurnar myndu halda
Júróvísjónpartí í Reykjavík fyrir sunnan? Jafnvel væri gott að
leigja rútukálf undir þær sem ekki búa á höfuðborgarsvæðinu (þó svo
að sé alveg á mörkunum að Sara búi þar: ) Við þyrftum að sjálfsögðu
ekki að binda okkur við að Ísland komist áfram enda er nú ekki
útséð með það þar sem Finnarnir eru að koma með Hard Rock
Halleluja. En mikið
yrði þetta skjémmtilegt. Væri gott ef áhugi glæðist að setja það
hér fyrir neðan í athugasemdir (komment er svo útlenskt
eitthvað).
Spurning með ástandið sem við verðum
í

Nei andskotinn við látum þetta ekki
gerast!
Svo þarf ég nauðsynlega að koma þeim
skilaboðum á framfæri að karmellurnar frá Euro-shopper eru mjög
góðar og ættu að fá verðlaun. Ég er búin að borða heilan poka um
helgina, 335 gr nákvæmlega! Hjúkket að ég er svona mjó!
Vonandi er ég ekki að láta nýju
nafngiftina falla í skuggann, minni því ótvírætt á færsluna hér
fyrir neðan. Svakalega sætur snúður!
En áfram Mussur!
Kv.Linda